MS próf við Læknadeild Háskóla Íslands.
MS próf við Læknadeild Háskóla Íslands.
Föstudaginn 5. febrúar gekkst Egill Thoroddsen líffræðingur undir meistarapróf við Læknadeild Háskóla Íslands. Meistaranámsverkefnið hans heitir: Lífeðlisfræðileg áhrif líkamlegrar þjálfunar á sjúklinga með langvinna lungnateppu eða langvinna hjartabilun. Verkefnið var unnið á Hjarta- og lungnarannsóknarstofunni á Reykjalundi og fjallar eins og titillinn ber með sér um áhrif þjálfunar á sjúklinga með hjarta- og lungnasjúkdóma. Alls 30 sjúklingar voru þolprófaðir og öndunarmældir fyrir og eftir 6 vikna endurhæfingu. Niðurstöðurnar sýndu greinilega aukið þol eftir þjálfunina auk þess sem öndunarmynstur lungnasjúklinganna batnaði. Leiðbeinandi Egils var Marta Guðjónsdóttir rannsóknastjóri á Reykjalundi og lektor við Læknadeild HÍ. Auk hennar voru í meistaranámsnefnd Stefán B. Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri og Gísli Einarsson endurhæfingarlæknir á Grensás og lektor við Læknadeild HÍ.