Alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur þann 10. október 2005

Í tilefni Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins þann 10. október 2005  býður starfsfólk frá geðsviði Reykjalundar almenningi til fræðsludags í Gerðubergi

 

Starfsfólk geðsviðs Reykjalundar ætlar að bjóða almenningi upp á fræðsluerindi í Gerðubergi þann 4. október, milli kl. 14:00 og 16:30. Erindi þessi eru hluti af fræðslu sem boðið er upp á í endurhæfingardagskrá okkar undir yfirskriftinni „Að vera manneskja“. Grunnhugmynd þessarar fræðslu er að hvetja sjúklinga til að taka ábyrgð á eigin heilsu. Farið er í gegnum marga þá þætti sem einstaklingurinn getur sjálfur haft áhrif í sínu daglega lífi og sannanlega skipta máli fyrir heilbrigði og vellíðan. Erindin nefnast „Áhrif depurðar á daglegt líf“ í umsjá Önnu Maríu Jónsdóttur geðlæknis, „Jafnvægi í daglegu lífi“ í umsjá Þórunnar Gunnarsdóttur iðjuþjálfa, „Áhrif hreyfingar á andlega líðan“ í umsjá  Arnbjargar Guðmundsdóttur sjúkraþjálfara, „Viðmót skapar viðmót“ flutt af Ingibjörgu Flygering félagsráðgjafa og „Samskipti og félagsfærni“ flutt af Rúnari Andrasyni sálfræðingi.  
        

Fyrir hönd geðteymis Reykjalundar

Valgerður Baldursdóttir yfirlæknir.