Landsbankinn færir Reykjalundi 5. m.kr. styrk

Í dag komu fulltrúar frá Landsbankanum í heimsókn á Reykjalund og færðu stofnuninni styrk að upphæð 5 m.kr.  Í bréfi til stjórnar Reykjalundar sem fylgdi styrknum segir: "Það er stjorn Landsbankans sönn ánægja að færa SÍBS og Reykjalundi styrk aðupphæð kr. 5.000.000.- til frekari uppbyggingar í því gríðarlega mikilvæga starfi sem fram fer að Reykjalundi með einlægri ósk og von um farsæla framtíð."  Birgir Gunnarson forstjóri Reykjalundar tók við styrknum sem Haukur Halldórsson formaður bankaráðs afhenti.

Haukur Halldórsson formaður bankaráðs afhendir Birgi Gunnarssyni forstjóra Reykjalundar styrkinn.
Haukur Halldórsson formaður bankaráðs afhendir Birgi Gunnarssyni forstjóra Reykjalundar styrkinn.