Ingólfur Sveinsson geðlæknir lætur af störfum á Reykjalundi
Í dag 22.12 var síðasti vinnudagur Ingólfs Sveinssonar geðlæknis á Reykjalundi. Ingólfur er sá starfsmaður stofnunarinnar sem við starfslok á lengstan starfsaldur að baki eða 35 ár. Hann hóf störf 21 september 1974 og hefur allan sinn starfstíma unnið hlutastarf á Reykjalundi samhliða því að hafa verið með eigin stofurekstur. Ingólfur hefur í starfi sínu lagt áherslu á mikilvægi góðs svefns, líkamshreyfingar og bjargráða við streitu til að bæta andlega líðan.
Bæði fyrrverandi og núverandi samstarfmenn Ingólfs kvöddu hann með kaffisamsæti þar sem honum voru þökkuð velunnin störf.

