Breytingar á starfsemi Reykjalundar frá 1.2. 10.
Eins og ykkur er kunnugt um verða breytingar á starfsemi Reykjalundar frá 1.2. 10. Ein legueining verður og önnur starfsemi fer fram mill 8-16 fimm daga vikunnar. Gisting verður til staðar fyrir þá sem á þurfa að halda. Ekki verður breyting á fjölda teyma eða skipulagi þeirra en breytingar verða á starfsstöðum teyma, á vinnuumhverfi hjúkrunar og skil gert milli gistirýma og legurýma. Tveir vinnuhópar annar leiddur af Þórunni Guðmundsdóttur hjúkrunarstjóra/teymisstjóra á hjartasviði og hinn leiddur af Sigurlaugu Arngrímsdóttur hjúkrunarstjóra á sólahringseiningunni hafa skilað af sér tillögum um nýtt fyrirkomulag til framkvæmdastjórnar. Tillögurnar og niðurstaða framkvæmdastjórnar verða kynntar starfsmönnum á almennum starfsmannafundi þann 13.1 kl. 12.15.
Dagana 28.1, 29.1, 1.2 og 2.2. verðum við að nýta til innanhúsbreytinga. Sjúklingarnir fá langt helgarfrí þessa daga og við starfsmenn vinnum þessa daga að lokafrágangi breytinganna.
Framkvæmdastjórn efnir til nafnasamkeppni meðal starfsmanna um heppilegt nafn á nýju sólahringseininguna sem lýsir starfseminni sem þar fer fram. Vinsamlegast sendið undirritaðri tillögur ykkar fyrir föstudaginn 8.1.
Kveðja með óskum um gleðilega jólahátíð.
Fh. framkvæmdastjórnar
Hjördís