20 ára starfsafmæli

Fjórir starfsmenn þau: Anna Kristín Þorsteinsdóttir,hjúkrunarfræðingur, Kristbjörg Helgadóttir,sjúkraþjálfari, Sveinn Sveinsson, útiverkstjóri og Una Lilja Eiríksdóttir, bókari, voru heiðruð í tilefni þess að þau hafa starfað hjá Reykjalundi í heil 20 ár. Voru þeim færð að gjöf armbandsúr með áletruninni; þökkum 20 ár. Við óskum þeim áframhaldandi velfarnaðar í starfi, þó líklega ekki í 20 ár, en hver veit!