Malbikun við Reykjalund

Nú líður að því að flokkur manna frá Loftorku í Reykjavík komi á Reykjalund með tæki sín og hefjist handa.

 

Verkefnið er að vinna við undirbyggingu, lagnir og malbikun ásamt kantsteinum á svæðinu frá röralagerhliði og upp að söludeild, síðan áfram upp melinn að planinu við þjálfunarhúsið ásamt stóra bílastæðinu þar.

Einnig verður malbikað inn með bakbyggingu vinnuskálanna og útbúið malbikað bílastæði umhverfis spennistöðina.

Þá verður Efribraut malbikuð á ný ásamt bílastæðum.

 

Hér er um stórt verkefni að ræða, eða u.þ.b. 11 þúsund fermetra af malbiki.  Verkið var boðið út 9. ágúst sl. og samið við Loftorku í Reykjavík sem var lægstbjóðandi.

 

Óhjákvæmilega munu þessar framkvæmdir, sem hefjast á næstu dögum, hafa í för með sér einhver óþægindi og kalla á liðlegheit starfsfólks og gesta varðandi það hvar hægt er að aka og leggja bílum, en slíkt ætti að vera léttbært þegar hugsað er til ávinnings að framkvæmd lokinni.