Fjölskylduhátíð í einmuna blíðu
Laugardaginn 3. september sl. var haldin fjölskylduhátíð
fyrir starfsfólk Reykjalundar í tilefni 60 ára afmælis staðarins. Á hátíðina mættu tvö- til þrjúhundruð manns; starfsfólk, börn, makar, ömmur, afar, vinir og aðrir fylgifiskar starfsmanna. Þjálfarar staðarins og gleðigjafar höfðu sett upp þrautabraut og komið fyrir leiktækjum og keppnistólum af öllum gerðum í túninu framan við aðalbyggingu. Eftir leiki og sprell dágóða stund var boðið til grillveislu í glaðasólskini þar sem reiddur var fram fádæma góður matur. Ingólfur Kristjánsson leiddi söng undir dillandi harmónikkuleik Þórs Halldórssonar. Öll börn (og fullorðnir með barn í hjarta) fengu verðlaunapening fyrir að taka þátt í Reykjalundarleikunum.
Undirbúningsnefnd á þakkir skildar fyrir að bjóða upp á frábæra skemmtun og ekki hvað síst fyrir blíðviðrið sem var í stíl við sólskinsskap þátttakenda!