Reykjalundur er tilnefndur til Hvatningaverðlauna Öryrkjabandalagsins 2009
Reykjalundur er tilnefndur til Hvatningaverðlauna
Öryrkjabandalagsins 2009 í flokki fyrirtækja. Reykjalundur er tilnefndur fyrir uppbyggingu endurhæfingar fyrir fatlaða svo að þeir öðlist getu til þátttöku í þjóðfélaginu á ný. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi á alþjóðadegi fatlaðra 3.12.