Ný staða hjúkrunarstjóra
Búið er að ráða í stöðu hjúkrunarstjóra á nýrri legueiningu sem opna á 1. febrúar. Auglýst var í stöðuna innan staðar og bárust 6 umsóknir. Umsóknir fóru til hjúkrunarráðs staðarins sem mátu hæfi umsækjanda og reyndust þeir allir hæfir. Framkvæmdastjóri hjúkrunar valdi síðan til starfans eftir viðtöl við umsækjendur og fyrir valinu varð Sigurlaug Arngrímsdóttir sem hefur starfað hér á tauga og hæfingarsviði auk viðtækrar reynslu frá öðrum stofnunum. Hamingjuóskir til Sigurlaugar með starfið og hún boðin velkomin í hóp stjórnenda við stofnunina.