Höfðingleg gjöf frá Atlanta
Reykjalundur fékk nýverið veglega gjöf frá Flugfélaginu Atlanta til notkunar í sjúkraþjálfun. Tækið er framleitt af Guldmann og keypt hjá Eirbergi. Það samanstendur af brautum í lofti, lyftubúnaði, segli og vigt og nýtist til færniþjálfunar og til að auðvelda flutning t.d. milli stóls og bekkjar. Tækið gefur möguleika á gönguþjálfun með eða án fulls þunga á fæturna, jafnvægisþjálfun, þjálfun við stöðubreytingar og stöðugleikaþjálfun fyrir einangraða vöðvahópa. Tækið er auk þess vinnusparandi fyrir þjálfara og aðstoðarfólk. Vigtin veitir upplýsingar um hversu stórum hluta af líkamsþunga er létt á við göngu eða aðrar færniæfingar. Auk þess er hægt að vigta sjúklinga sem erfitt er að vigta á hefðbundinn hátt.