Gengið í Kerlingarfjöllum

15 manna hópur starfsmanna og maka hélt í Kerlingarfjöll eftir vinnu sl. föstudag.  Þar tók haustveður á móti hópnum og var frost og snjókoma þegar lagt var af stað gangandi úr skálum á laugardagsmorgni.  Gengið var um Hveradali og yfir Kerlingarfjöllin niður að Kerlingarárgljúfri og Kerlingará fylgt í Leppistungur að skála Hrunamanna sem þar er.  Veðrið lagaðist þegar leið á daginn, sólin fór að skína og mikilfengleg fjallasýn blasti við.  Meðfylgjandi mynd er af hópnum í Leppistungum ásamt trússbílstjórunum, áður en haldið var í sunnudagsgönguna niður í Svínárnes.