Nýr fræðslubæklingur um offituaðgerðir
Út er kominn bæklingurinn Hjáveituaðgerð á maga en hann er hugsaður sem uppsláttarrit fyrir sjúklinga sem hafa farið í eða hafa hug á að fara í megrunarskurðaðgerð á Landspítalanum. Samvinna við Reykjalund hefur verið að þróast sl. fjögur ár og árangur verið sérlega góður. Útgefandi bæklingsins er Halldór R. Lárusson og höfundar efnis eru Björn G. Leifsson, Hjörtur Gíslason, Ludvig Guðmundsson, Svava Engilbertsdóttir og Halldór R. Lárusson.
Texta bæklingsins má nálgast hér.