Bæklingur með næringartöflum

Reykjalundur hefur gefið út bækling með næringartöflum sem unninn var af Zulemu Sullca Porta, næringarfræðingi.  Zulema tók næringartöflurnar saman upp úr Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ISGEM) með leyfi frá Matvælarannsóknum Keldnaholti og í samvinnu við manneldisteymi Reykjalundar.  Bæklingurinn er til sölu á 500 krónur, í versluninni á Reykjalundi og á göngudeild Reykjalundar.  Í bæklingnum er næringartöflunum skipt í 14 flokka eftir fæðuflokkum.  Innan hvers flokks er fæðutegundum yfirleitt raðað eftir stafrófsröð og notuð meðalskammtastærð fyrir hverja fæðutegund.  Fyrir hverja fæðutegund eru gefnar upp hitaeiningar í kílókaloríum og stig, ásamt upplýsingum um orkuefnin (prótein, fitu og kolvetni) og hlutfall þeirra í fæðunni.