Undirritun þjónustusamnings





Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra og Birgir Gunnarsson forstjóri undirrituðu nýjan þjónustusamning milli ráðuneytisins og Reykjalundar fimmtudaginn 5. Mars s.l.  Samningurinn er til tveggja ára og er í meginatriðum framlenging á gildandi samningi og er því gert ráð fyrir samskonar þjónustuframboði og verið hefur á Reykjalundi.  Í samningnum er auk þess gert ráð fyrir kr. 15 millj. viðbótarframlagi vegna meðferðar sjúklinga með heilaskaða.  Reykjalundur fagnar því að samningar skuli í höfn og að áfram skuli stuðlað að því að efla Reykjalund í því hlutverki sínu að vera miðstöð endurhæfingarstarfsemi á Íslandi.