Öryggismiðstöðin gefur Reykjalundi björgunarstól.
Öryggismiðstöðin hf. gaf Reykjalundi í dag björgunarstól til að flytja sjúklinga niður stigaganga og tröppur.
Það voru þeir Garðar Ólafsson, Helgi Guðmundsson og Ómar Örn Jónsson markaðsstjóri frá Öryggismiðstöðinni sem afhentu Reykjalundi stólinn í dag.
Björgunarstóllin er kærkomin viðbót við þau úrræði sem Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS hefur yfir að ráða til að bregðast við hættuástandi. Í rýmingaræfingu sem haldin var s.l. haust kom í ljós að stóll sem þessi gæti nýst vel til að koma sjúklingum sem erfitt eiga með gang út úr húsi ef hættuástand skapast.
Reykjalundur þakkar Öryggismiðstöðinni stuðninginn. Nánari lýsingu á stólnum má finna á http://www.evac-chair.co.uk/modelrange/index.htm .