Fræðsla í útvarpi

Nokkrir meðferðaraðilar úr reykleysisteymi Reykjalundar tóku þátt í þáttaröðinni
Hættum að reykja á útvarpi Sögu í maí. Þættirnir voru klukkustundar langir og voru settir saman úr fræðslu og umræðum. Hlustendur áttu kost á að hringja inn í þáttinn og fá að ræða við meðferðaraðila og aðra þátttakendur.