Styrktarsjóður hjartasjúklinga færir Reykjalundi gjöf.
Afhending gjafar til Reykjalundar
Gísli J. Júlíusson formaður styrktarsjóðs hjartasjúklinga kvaddi sér hljóðs á 36. þingi SÍBS og afhenti Reykjalundi, Lifepack hjartastuðtæki, í tilefni af 70 ára afmæli SÍBS og 25 ára afmæli Hjartaheilla.
Hjördís Jónsdóttir lækningaforstjóri Reykjalundar tók við gjöfinni og færði Hjartaheillum þakkir stofnunarinnar.