36. þing SÍBS - afmælisþing
Afmælisþing SÍBS og málþingið: "Hvers virði erum við?" verður haldið á Reykjalundi dagna 24. og 25. október n.k.
Málþingið sækja um hundrað manns og álíka fjöldi mun sitja sambandsþingið, en þau eru haldin á tveggja ára fresti og eru eins konar aðalfundur SÍBS. Þar eru til umfjöllunar málefni sambandsins, kosið er í stjórnir og nefndir og fleira því tengt.
Þingfulltrúum er síðan boðið til veglegs hátíðakvöldverðar á laugardagskvöld.