Samstarf Reykjalundar og PÍ: Nýr bæklingur
Út er kominn bæklingurinn Parkinsonsveiki, einkenni og úrlausnir. Útgáfan er samstarfsverkefni parkinsonsteymis Reykjalundar og Parkinsonssamtaka Íslands. Bæklingurinn er að grunni til byggður á fræðsluefni sem notað er á endurhæfingarnámskeiðum fyrir fólk með parkinsonsveiki á taugasviði Reykjalundar.
Bæklinginn má nálgast á deild A-3 á Reykjalundi (taugasvið), og hjá Parkinsonssamtökunum, Hátúni 10b, Reykjavík.