Endurhæfing að sumarlagi
Svipað fyrirkomulag er varðandi endurhæfinguna nú í sumar og verið hefur undanfarin ár. Einungis tvær einingar loka alveg yfir sumarið, en það eru næringarsvið og göngudeild. Engin önnur starfsemi er felld niður vegna sumarleyfa, heldur er innlögnum fækkað, starfsfólk fært milli deilda og það leysir hvert annað af.