Halla M. Hallgrímsdóttir aðalbókari lætur af störfum
Þann 4. júlí s.l. var síðasti starfsdagur Höllu M. Hallgrímsdóttur aðalbókara en þá voru nákvæmlega 30 ár frá því að hún hóf störf á Reykjalundi. Allan sinn starfsferil á Reykjalundi vann Halla við bókhald stofnunarinnar og sinnti því einstaklega vel. Fyrir utan dagleg störf við bókhaldið lét Halla félagsmál starfsmanna Reykjalundar mikið til sín taka. Hún var fyrsti formaður starfsmannafélagsins og hefur verið í Reykjalundarkórnum frá upphafi.