Starfslok Auðar Sveinsdóttur yfirlæknaritara

Þann 3. júní sl. héldu starfsmenn Reykjalundar Auði Sveinsdóttur kveðjuhóf, er hún lét af störfum eftir 42 ára starf. Á þessum tímamótum átti hún lengstan starfsaldur við stofnunina. Auður réði sig til Reykjalundar árið 1966 og fyrsta árið vann hún við umönnun. Í lok árs 1967 varð hún fyrsti læknaritari Reykjalundar. Árið 1988 varð hún yfirlæknaritari. Því starfi gegndi hún fram til 2005 að hún kaus að fara í hálft starf og verða almennur læknaritari  til starfsloka.