Tónleikaferð til Prag og Búdapest
Ferðasaga
Reykjalundarkórinn
í Prag og Búdapest.
Þann 9. júní lagði Reykjalundarkórinn af stað í mjög skemmtilegt söngferðalag. Dvalið var 3 nætur í Prag og haldnir tónleikar í Nikulásarkirkju sem er við gamla torgið í miðborg Prag. Tónleikarnir tókust mjög vel og var einstöð upplifun að syngja í þessari gömlu og fallegu kirkju sem er byggð 1732 1735. Einnig voru dagarnir notaðir til að skoða kastalann sem er frábærlega fallegur og stærsti kastali í Evrópu og farið í Black Magicleikhús sem er nokkurs konar tékkneskt afspengi brúðuleikhúsanna, látbragð fyrir fullorðna. Prag er mjög falleg borg og margt að skoða.
12. júní var ekið til Búdapest í 38° hita og var þá gott að vera í nýrri loftkældri rútu, en hana höfðum við til afnota allan tímann. Dvalið var í Búdapest 6 nætur. Búdapest er ekki síður falleg borg og ótrúlega margt að skoða. Þar var sungið í Matthíasarkirkju sem er á kastalahæðinni í Búda og var það ekki síður mikil upplifun. En Dóná skiptir borginni í Búda og Pest. Við vorum boðin að syngja í listaskóla í litlum bæ austast í Ungverjalandi sem heitir á íslensku Birkibæjarklaustur og fengum þar höfðinglegar móttökur.
Í Ungverjalandi var ýmislegt gert sér til skemmtunar. Farið var út á sléttuna Pústuna til hestabónda þar sem vel var tekið á móti fólkinu með víni, hestasýningu og mat. 17. júní fórum við í 3ja tíma siglingu á Dóná með mat, söng og dansi. Einnig var farið í óperuna og hlustað á Toscu. Síðustu nóttina dvöldum við í Vín nálægt sumarhöllinni Schonbraun.
Ferðin tókst í alla staði mjög vel og var skipulögð af Friðriki G. Friðrikssyni sem var fararstjóri og Ferenc Utassy sem tók á móti okkur í Ungverjalandi.
Óhætt er að segja að svona söngferðir eru kórstarfinu mikil lyftistöng, bæði sönglega og félagslega séð.
Halla M. Hallgrímsdóttir.