Tónleikaferð til Austurríkis
Tónleikaferð Reykjalundarkórsins sumarið 2000

Í júní 2000 fór kórinn í vel heppnaða tónleikaferð til Austurríkis ásamt dyggu stuðningsliði sem í eru makar og vinir kórfélaga. Haldnir voru þrennir tónleikar. Á efnisskránni voru íslensk þjóðlög og kirkjuleg tónlist. Sungið var í Stadtpfarrkirche St. Peter und Paul - mjög fallegri kirkju í miðbæ Riedsem sem er skammt frá Salzburg. Vinur Lárusar Sveinssonar, Robert Mayrhofer, tók á móti kórnum og annaðist undirbúning tónleikanna. 15. júní hélt kórinn tónleika í Waisenhauskirche í Vín en tónskáldið Helmut Neumann ásamt íslenskri eiginkonu hans beittu sér fyrir því að þeir tónleikar yrðu að veruleika. Síðustu tónleikarnir voru í bænum Villach þar sem Orthulf Prunner tók á móti kórnum og kona hans

Ellen Martin sópransöngkona, en Orthulf starfaði í Hátegskirkju í Reykjavík í mörg ár. Kórnum var allsstaðar vel tekið. Margt annað skemmtilegt var gert undir góðri leiðsögn Símonar Ívarssonar og Maríu Ivarsdóttur og voru margir markverðir staðir skoðaðir.