Jón M. Benediktsson framkvæmdarstjóri sjúkrahússviðs Reykjalundar hefur tekið við nýju starfi innan samtaka SÍBS.
Jón M. Benediktsson framkvæmdarstjóri sjúkrahússviðs Reykjalundar hefur tekið við nýju starfi innan samtaka SÍBS. Hann verður framkvæmdastjóri fasteignarekstrar SÍBS. Jón hóf störf á Reykjalundi árið 1974, þá sem sölumaður iðnaðardeilda. Árið 1981 var hann ráðinn skrifstofustjóri Reykjalundar og árið 1995 þegar aðskilnaður varð á rekstri iðnaðardeilda og endurhæfingar varð Jón framkvæmdastjóri sjúkrahússvið Reykjalundar. Starfsfólk og stjórn Reykjalundar héldu Jóni kveðjuhóf í gær. Þar voru honum þökkuð góð störf fyrir Reykjalund og óskað velfarnaðar í nýju starfi. Jón var við þessi tímamót sá starfsmaður Reykjalundar sem næst lengstan starfsaldur á að baki hjá Reykjalundi. Sá sem unnið hefur lengst er Auður Sveinsdóttir læknaritari. Hún lætur af störfum í sumar eftir að hafa sinnt störfum læknaritara frá árinu 1966, lengst af sem yfirlæknaritari.