Reykjalundi berst höfðingleg gjöf frá Parkinsonssamtökunum

Forstjóri Reykjalundar veitir gjöfinni viðtöku frá formanni PSÍÞann 11. Apríl 200, á Alþjóðlega Parkinsonsdaginn, færðu Parkinsonssamtökin á Íslandi parkinsonsteymi Reykjalundar að gjöf gönguæfingabraut ásamt hugbúnaði til göngugreiningar, af tegundinni GAITRite Portable Walkway System.


Búnaður þessi opnar á tækifæri til göngurannsókna og göngugreininga á Reykjalundi , fyrir parkinsonsveika og aðra og er því mikill fengur fyrir staðinn. Tækið nýtist einnig sem æfingatæki.


Afhending búnaðarins fór fram í kaffisamsæti á Reykjalundi á Alþjóðlega Parkinsonsdaginn, þar sem gefendum voru færðar miklar þakkir fyrir höfðinglega gjöf.


Þá var búnaðurinn ræstur af Andra Þ. Sigurgeirssyni sjúkraþjálfara, sem útskýrði notkunarmöguleika tækisins og viðstaddir fengu að spreyta sig á göngubrautinni. Andri er einmitt að hefja vísindarannsókn, Áhrif mikillar gönguþjálfunar með sjónáreiti á göngu parkinsonsveikra. Rannsóknin verður unnin á Reykjalundi.