Lífeðlisfræðileg áhrif líkamsþjálfunar á sjúklinga með langvinna lungnateppu og langvinna hjartabilun.

Egill Thoroddsen: Málstofa læknadeildar. Lífeðlisfræðileg áhrif líkamsþjálfunar á sjúklinga með langvinna lungnateppu og langvinna hjartabilun (13.03.2008) (Glærur)

Málstofa læknadeildar er haldin í kennslustofu á þriðju hæð í Læknagarði á hverjum fimmtudegi og hefst með kaffiveitingum kl. 16:00 og lýkur um kl. 17. Fimmtudaginn 13. mars mun Egill Thoroddsen flytja erindi um verkefni sitt Lífeðlisfræðileg áhrif líkamsþjálfunar á sjúklinga með langvinna lungnateppu og langvinna hjartabilun.

 Markmið verkefnisins er í fyrsta lagi að kanna þá lífeðlisfræðilegu þætti sem takmarka þol sjúklinga með mikla eða svæsna langvinna lungnateppu (LLT) og sjúklinga með langvinna hjartabilun (LHB). Í öðru lagi að meta áhrif margþættrar líkamsþjálfunar á fyrrgreinda þætti. Sameiginlegt einkenni þessara sjúklinga er óeðlileg mæði við áreynslu þótt ástæðan fyrir mæðinni sé mismunandi. Því verður öndunargeta og öndun við vaxandi áreynslu skoðuð sérstaklega og borin saman við huglægt mat sjúklinganna sjálfra (Borg skalinn) ásamt því að þjálfunaráhrif á öndun verður metin.

Alls munu 30 sjúklingar taka þátt í rannsókninni, 15 með LLT og 15 með LHB (nú hafa 13 LLT og 11 LHB lokið þátttöku sinni) . Allir sjúklingarnir fara í hámarksþolpróf þegar þeir hefja endurhæfingu á Reykjalundi (endurhæfingarmiðstöð SÍBS í Mosfellsbæ) og ljúka svo dvölinni með sams konar prófi. Í þessum prófum eru margar lífeðlisfræðilegar breytur rannsakaðar, svo sem: súrefnisupptaka, koldíoxíðútskilnaður, loftun, öndunarmynstur, púls, blóðþrýstingur, blóðgös og súrefnismettun. Endurhæfingin stendur yfir í 6 vikur en á þeim tíma byggja sjúklingarnir að upp vöðvastyrk, -þrek, sækja sér námskeið tengt sjúkdómi sínum og læra að lifa með honum. Heildarstærð lungna og heildarloftskipti allra þátttakenda er mæld einu sinni á meðan dvölinni stendur. Fitumæling er gerð við komu og brottför, bæði með rafleiðnimælingu og síðan með fituklípi mælingu. Fyrstu niðurstöður benda til þess að báðir hóparnir (LLT og LHB) hafi aukið súrefniupptöku, loftun og andrýmd marktækt. BMI (Body mass index) lækkaði einnig marktækt.

Leiðbeinandi Egils í MS námi er Marta Guðjónsdóttir og umsjónarkennari er Stefán B. Sigurðsson.