Birt fræðigrein um endurhæfingarhjúkrun
Tímaritið Journal of Advanced Nursing hefur birt niðurstöður rannsóknar um reynslu sjúklinga af endurhæfingu. Þessi rannsókn var unnin á Reykjalundi, Landspítala Grensási og Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði af Jónínu Sigurgeirsdóttur hjúkrunarframkvæmdastjóra Reykjalundar og Dr. Sigríði Halldórsdóttur, sem er prófessor við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknin var lokaverkefni Jónínu til meistaraprófs í hjúkrunarfræði við Royal College of Nursing í Manchester og Háskólann á Akureyri. Markmið rannsóknarinnar var að auka skilning á reynslu sjúklinga af endurhæfingu og var áhersla lögð á að skoða þeirra eigin lýsingu á þörfum sínum.
Um var að ræða fyrirbærafræðilega rannsókn og var stuðst við leiðbeiningar Vancouver skólans í fyrirbærafræði. Úrtakið var svonefnt tilgangsúrtak og var rætt við 12 einstaklinga á aldrinum 26-85 ára, sem höfðu reynslu af endurhæfingu á einhverri hinna þriggja endurhæfingarstofnana sem áður voru nefndar. Alls voru tekin 16 viðtöl, því til að auka dýpt gagnasöfnunar og leitast við að tryggja réttan skilning rannsakanda var rætt tvisvar við fjóra þátttakendur. Gagnasöfnun fór fram árið 2005. Fylgt var siðfræðilegum leiðbeiningum Royal College of Nursing, rannsóknin var samþykkt af Vísindasiðanefnd og Persónuvernd var gert aðvart eins og lög gera ráð fyrir. Engum upplýsingum var safnað fyrr en þátttakendur höfðu skrifað undir upplýst samþykki.
Niðurstöðurnar benda til þess að þörf sé á að leggja aukna áherslu á að meta þá tilvistarlegu þætti sem tengjast veikindum. Sóknarfærin eru að leggja áfram áherslu á einstaklingshæft meðferðarsamband, sem byggist á umhyggju fyrir sjúklingnum, andlegum stuðningi og virðingu fyrir þeim þörfum sem sjúklingurinn sjálfur telur brýnastar fyrir sig.
Greinin er aðgengileg á tölvutæku formi á vef Journal of Advanced Nursing:
Journal of Advanced Nursing
February 2008 - Vol. 61 Issue 4 Page 347-472