Samningar um þvottaþjónustu undirritaðir

Frá vinstri: Jón Ingi Baldursson þvottahússtjóri, Gísli Páll Pálsson framkvæmdastjóri Áss, Jón M. Benediktsson framkvæmdastjóri, Birgir Gunnarsson forstjóri og Lára M. Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri.Í dag voru undirritaðir samningar við Þvottahús Grundar og Áss um þvott á öllu líni fyrir Reykjalund.

Samningurinn tekur gildi 1. febrúar nk., á afmælisdegi stofnunarinnar.

Þvottahúsið, sem er sameign Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar og Dvalarheimilisins Áss, er staðsett í Hveragerði, og annast þeir jafnframt flutninga á þvottinum tvisvar í viku.

Þvottahúsi Reykjalundar verður lokað frá sama tíma, en það, ásamt Þvottahúsinu Fönn, hefur annast þvottinn hingað til.