Gjöf frá Samtökum lungnasjúklinga

Í tilefni af 10 ára afmæli Samtaka lungnasjúklinga í maí sl.kom stjórn samtakanna færandi hendi nú á aðventunni og gaf sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar fullkomið æfingahjól, sem mun aðallega verða notað við þolþjálfun hjarta-og lungnasjúklinga. Hjólið er mjög góð viðbót við tækjakost deildarinnar og voru samtökunum þakkaður góður hugur og velvilji í garð Reykjalundar.