Reykjalundur 60 ára.

Í dag er 60 ára afmæli Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS.  Framkvæmdastjórn Reykjalundar hefur ákveðið að hafa ýmsar uppákomur á árinu í tilefni afmælisins. Má þar nefna opið hús í lok maí, fjölskyldudag starfsfólks í byrjun september og útgáfu kynningarbæklings á árinu.  Opið hús og fjölskyldudagur verða auglýst nánar síðar.