Gunnar Árnason myndhöggvari færir Reykjalundi fallega gjöf

Gunnar Árnason myndhöggvari færði Reykjalundi að gjöf listaverkið Portret af myndhöggvara sem mun standa í setustofu deildar A3 á Reykjalundi. Hjördís Jónsdóttir lækningaforstjóri veitti listaverkinu móttöku fyrir hönd stofnunarinnar og þakkaði Gunnari þessa góða gjöf og þann velvilja sem hann sýnir stofnuninni.