Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna í Reykjavík gefur Reykjalundi veglega gjöf
Laugardaginn 24. nóvember sl. fagnaði Styrktar-og sjúkrasjóður verslunarmanna í Reykjavík 140 ára afmæli síns félagsskapar.

Í tilefni afmælisins komu fjölmargir úr þeirra röðum í heimsókn á Reykjalund og afhentu formlega 12 æfingatæki í þreksal þjálfunarhússins, 4 þrekhjól í hjólasalinn, svefnrannsóknartæki og blóðþrýstingsmæli í Hjarta- og lungnarannsóknarstofuna.
Samtals nemur andvirði gjafarinnar liðlega 7 milljónum króna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Styrktarsjóðurinn styður Reykjalund með mjög myndarlegum hætti, en það gerði hann síðast fyrir fimm árum, að hann gaf tölvubúnað til eftirlits við æfingar sjúklinga á þrekhjólum.
Gestirnir skoðuðu búnaðinn og fræddust um hann af starfsfólki, en þáðu síðan veitingar í borðsal stofnunarinnar.


Seint verður framtak samtaka á borð við Styrktar- og sjúkrasjóð verslunarmanna ofmetið eða fullþakkað og ljóst að ef slíkra nyti ekki við, væri tækjakostur stofnunarinnar með öðrum hætti en raun ber vitni.