Rannís styrkir rannsóknarverkefni á Reykjalundi.

Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís - hefur veitt rannsóknarverkefninu Klínisk samanburðarrannsókn á verkjameðferð styrk að upphæð 1,5 m.kr.  Magnús Ólason yfirlæknir á verkjasviði Reykjalundar stýrir rannsókninni en meginmarkmið hennar er að kanna árangur tvenns konar meðferðar sjúklinga með langvarandi verki; 1) hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) auk hefðbundinnar þol - og styrktarþjálfunar við 2) hefðbundna endurhæfingu með þol- og styrktarþjálfun og hvort fyrrgreinda meðferðin leiði fremur til þátttöku í atvinnulífinu.