Nýtt lógó Reykjalundar.

Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS hefur fengið nýtt einkennismerki. 
Merkið er hannað af Gunnari Þór Arnarsyni hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu.  Megintákn merkisins eru tveir hringir sem fléttast saman með tveim litlum hringjum fyrir ofan þá sem geta táknað hreyfingu, stuðning, kærleik, samhjálp og samvinnu.  Táknið vísar líka til tveggja persóna sem faðmast, leiðast og styðja hvora aðra - samtengdar ólíkar persónur sem vinna saman.