Vel heppnuð námsstefna á Reykjalundi

Samantekt á Námsstefnu sjúkraþjálfunardeildar Reykjalundar


Þann 14.október síðastliðinn stóð Sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar fyrir námsstefnu sem bar yfirskriftina: Hlutverk sjúkraþjálfara í heilbrigðisþjónustu á 21. öldinni; heilsa, hreyfing og fræðsla. Aðalfyrirlesari var Dr. Elizabeth Dean, sjúkraþjálfari og prófessor við University of British Columbia, Canada. Einnig kynnti Guðrún Káradóttir sjúkraþjálfari efni úr mastersverkefni sínu um þætti sem hafa áhrif á líkamlega virkni meðal barna, frá sjónarhorni barna.


33 sóttu námsstefnuna, þar af voru 20 starfsmenn á Reykjalundi og var almenn ánægja með framtakið.


Elizabeth fjallaði um heilsu í víðasta samhengi og heilbrigðisvandamál dagsins í dag í heiminum. Hún ræddi þróun lífsstílstengdra sjúkdóma í ólíkum menningarsamfélögum og vísaði í rannsóknir og tölulegar samantektir sem gerðar hafa verið um kostnað vegna heilsubrests sem hægt væri að fyrirbyggja með bættri þekkingu og aukinni heilsuhegðun. Elizabeth bendir á að í mörgum tilfellum séu ekki notuð rétt mælitæki á heilsu, að það skorti áherslur á forvarnir í víðasta samhengi þar sem unnið er í þekkingarmiðlun og atferlisbreytingu (heilsuhegðun) og áherslu á umhverfis-, menningar og félagslega heilsu. Elizabeth vitnar í breytingar sem hafa átt sér stað í hagkerfinu með auknum fjölda þeirra ríku og þeirra fátæku og hvaða áhrif það hefur á heilsu. Hún leggur áherslu á að Norðurlöndin skari ennþá framúr hvað varðar heilsu í víðu samhengi og mikilvægt að lögð sé rækt við þá sérstöðu sem við höfum og miðla til þeirra sem hafa farið af leið eins og til dæmis til Bandaríkjanna. Auk þess að fyrirbyggja óheilbrigða hegðun þá geti Norðurlöndin verið leiðandi í að stoppa þróun lífsstílstengdra sjúkdóma.


Námstefnan tókst mjög vel og viljum við þakka stuðning þeirra sem komu að undirbúningi og framkvæmd hennar.


Fyrir hönd fræðslunefndar sjúkraþjálfunardeildar


Sif Gylfadóttir, sjúkraþjálfari MSc