Bocciamót starfsmanna á Reykjalundi - úrslit

Sameinað lið læknaritara, rannsóknar og göngudeildar eru Bocciameistarar á Reykjalundi árið 2005.
Í undanúrslitum mættust B2 og sameinað lið læknaritara, rannsóknar og göngudeildar (Göngurannsóknarritarar). Göngurannsóknarritarar höfðu betur og mættu sameinuðu liði félagsráðgjafa, sálfræðinga og talmeinafræðings (Sáltalfélagsráðgjöfum) í úrslitum. Áður hafði hið sameinaða lið félagsráðgjafa, sálfræðinga og talmeinafræðings unnið B3 í undanúrslitum. Í úrslitum unnu svo Göngurannsóknarritarar lið Sáltalfélagsráðgjafa 6-2 og hömpuðu bocciastyttunni eftirsóttu.

Til hamingju Göngurannsóknarritarar!