Birt fræðigrein

Tímaritið Multiple Sclerosis hefur birt niðurstöður rannsóknar um þolþjálfun hjá fólki með MS. Þessi rannsókn var unnin á Reykjalundi af Ólöfu H. Bjarnadóttur yfirlæknir á taugasviði, Ásu Dóru Konráðsdóttir og Kristínu Reynisdóttur sjúkraþjálfurum á Reykjalundi og Elíasi Ólafssyni yfirlækni og prófessor í taugalækningum á LSH. Gerð var slembuð framskyggð rannsókn þar sem einn hópur tók þátt í 4 vikna þol- og styrkþjálfun en hinn hópurinn hreyfði sig eins og áður. Niðurstöður rannsóknar voru að hópurinn sem stundaði virka þjálfun bætti þol sitt marktækt meir en samanburðarhópurinn. Engin merki voru um versnandi MS einkenni í tengslum við þjálfunina.

Greinina má nálgast hjá tímaritinu Multiple Slerosis.

Multiple sclerosis and brief moderate exercise. A randomised study

O.H. Bjarnadottir, A.D. Konradsdottir, K. Reynisdottir, and E. Olafsson
Multiple Sclerosis, 7 2007; vol. 13: pp. 776 - 782.