Um vígslu þjálfunarhúss




Föstudaginn 4. janúar 2002 var nýtt þjálfunarhús vígt á Reykjalundi.
Byggingartíminn var 1 ½ ár. Húsið er alls um 2.700 fermetrar. Í því eru 510 fermetra íþróttasalur og tvær sundlaugar, 25 m þolþjálfunarlaug og 9 m æfingalaug.
Þrír minni þjálfunarsalir eru í nýja húsinu; tækjasalur, þrekhjólasalur og salur ætlaður til færniþjálfunar af ýmsu tagi.

Húsið er fjármagnað nú þegar að hálfu með fé sem safnaðist í landssöfnuninni "Sigur lífsins", sem fram fór árið 1998. Einnig er byggingin fjármögnuð með framlagi frá happdrætti SÍBS og úr byggingarsjóði Reykjalundar. Í þann sjóð hafa borist ýmsar höfðinglegar gjafir á síðustu árum.
Langtímalán hafa verið tekin fyrir því sem upp á vantar, en heildarkostnaður er áætlaður um 420 milljónir króna.

Happdrætti SÍBS hefur um langt skeið verið hornsteinn allrar uppbyggingar á Reykjalundi. Áframhaldandi stuðningur þjóðarinnar við uppbyggingu endurhæfingar í landinu, með því að eiga miða í happdrætti SÍBS, er ómetanlegur.

Vígsluathöfn nýja þjálfunarhússins fór fram að viðstöddu fjölmenni. Athöfnin hófst með ávarpi Björns Ástmundssonar forstjóra Reykjalundar.
Síðan blessuðu húsið biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson og séra Jón Þorsteinsson, sóknarprestur í Mosfellsprestakalli.


Ávörp fluttu Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Haukur Þórðarson formaður SÍBS, Vilhjálmur B. Vilhjálmsson, formaður stjórnar Reykjalundar, Jón M. Benediktsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússsviðs Reykjalundar og formaður byggingarnefndar og Hjördís Jónsdóttir, lækningaforstjóri Reykjalundar.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar lék við athöfnina og Reykjalundarkórinn söng.

Margar góðar gjafir bárust Reykjalundi frá einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum.

Að athöfn lokinni fór fram vígslusund, en það þreyttu sundmennirnir Bjarki Birgisson, ÍFR og Fjölni; Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR og Fjölni; Pálmar Guðmundsson, ÍFR og Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp.