Ráðherra styrkir gæðaverkefni

Karl Kristjánsson, læknir hlaut í dag gæðastyrk vegna verkefnis er nefnist:
Endurhæfingartengd starfsemi á Íslandi, upplýsingabanki Reykjalundar.
Samstarfsaðilar verkefnisins eru: Vefsíðunefnd Reykjalundar og göngudeildarteymi Reykjalundar.



Heilbrigðismálaráðherra styrkir á árinu ellefu gæðaverkefni í heilbrigðisþjónustunni og afhenti hún styrkina við hátíðlega athöfn í dag. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, afhenti styrkina í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu að viðstöddum þeim fjölmörgu sem standa að gæðaverkefnunum sem styrkt voru. Fjörutíu og sjö umsóknirn um gæðastyrki bárust ráðuneytinu í ár hvaðanæva af landinu. Sótt var um styrki til gæðastarfs á flestum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Umsóknirnar snéru meðal annars að klínisku gæðastarfi, rafrænni skráningu, öryggi sjúkra og þjónustukönnunum. Styrkt voru verkefni á sviði öldrunarþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, bráðaþjónustu, heilsugæslu, og endurhæfingu.