Gjafir til Reykjalundar
Reykjalundi hafa borist tvær höfðinglegar gjafir nú á haustmánuðum. Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna færði okkur á 135 ára afmæli sínu hjartagæslutæki að gjöf. Tækið var afhent við hátíðlega athöfn á Reykjalundi 30. október.
Landssamband hjartasjúklinga hefur fært okkur tvö hjartalínuritstæki. Annað til að nota í þolprófum, hitt til að taka hvíldarlínurit. Formleg afhending þessara tækja verður innan skamms. Gjafir eins og þessar eru starfsemi okkar ómetanlegar og eru gefendum færðar hinar bestu þakkir.
Hjördís Jónsdóttir