Heilaheill færa Reykjalundi fræðsluefni
Góðir gestir frá Heilaheillum komu á Reykjalund þann 30. nóvember sl. og færðu taugasviði Reykjalundar DVD diska með fræðsluefni. Á diskunum gefur að líta viðtöl við fólk sem fengið hefur heilablóðfall, einnig viðtöl við aðstandendur og fagaðila. Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, færði Hjördísi Jónsdóttur lækningaforstjóra fræðsluefnið, en með honum í för voru Edda Þórarinsdóttir og Ragnar Guðni Axelsson. Eru Heilaheillum færðar hjartans þakkir fyrir þessa góðu gjöf.
Sjá nánar á
vef Heilaheilla.