35. þing SÍBS


35. þing SÍBS var haldið á Reykjalundi dagana 20. og 21. október s.l.  Þingið sátu um 90 kjörnir fulltrúar frá aðildarfélögum sambandsins sem nú telja um 6500 félaga.  Markverðar breytingar, sem horfa til styrkingar á stjórnsýslu SÍBS, voru samþykktar á lögum sambandsins á þessu þingi en samtökin eiga og reka Reykjalund endurhæfingarmiðstöð, Múlalund og Happdrætti SÍBS auk þess að standa að rekstri Múlabæjar og Hlíðabæjar í samvinnu við aðra.  

Á fyrri þingdegi þann 20. október gekkst SÍBS fyrir fjölsóttu málþingi á Hótel Sögu undir yfirskriftinni “Hreyfing – lykill að lengra og betra lífi”.

Sigurður Rúnar Sigurjónsson var einróma endurkjörinn formaður SÍBS til næstu tveggja ára.