Haukur Þórðarson yfirlæknir látinn.

Haukur Þórðarson fyrrum yfirlæknir Reykjalundar lést á heimili sínu 4. október, 77 ára að aldri. Hann réðst til starfa á Reykjalundi 1962 og var ráðinn yfirlæknir stofnunarinnar árið 1970. Haukur lét af störfum vegna aldurs árið 1999 og hafði því unnið í 37 ár á staðnum, auk fjölmargra trúnaðarstarfa sem honum voru falin. Haukur var fyrstur íslenskra lækna til að fá sérfræðiviðurkenningu í orku- og endurhæfingarlækningum.
Hauki Þórðarsyni eru færðar þakkir Reykjalundar fyrir farsæl störf í þágu stofnunarinnar á miklum umbreytinga- og framfaratímum. Stjórn og starfsfólk Reykjalundar vottar fjölskyldu Hauks innilega samúð. Útför hans fór fram frá Hallgrímskirkju, miðvikudaginn 11. október að viðstöddu fjölmenni.