Vísindadagur á Reykjalundi.
Föstudaginn 18. nóvember 2011 var haldinn vísindadagur á Reykjalundi – sá áttundi í röðinni frá árinu 2004. Vísindadagur hefur öðlast sess sem mikilvæg uppskeruhátíð fagfólks á Reykjalundi og hefur eignast fastan dag, sem er þriðji föstudagur í nóvember. Í upphafi vísindadags er hefð fyrir því að úthluta rannsóknarstyrkjum úr vísindasjóði Reykjalundar. Í ár hlutu þrjár rannsóknir styrk:
- Mynstur öndunarhreyfinga hjá einstaklingum með emphysema og langvinna lungnateppu LLT (GOLD 3 og 4) í liggjandi stöðu og standandi með 45° bolhalla og stuðningi framhandleggja. Ábyrgðarmaður: Ásdís Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari
- Atferlismeðferð með eða án magahjáveituaðgerðar hjá alvarlega offeitum (BMI≥35), 3-4 ára eftirfylgd. Ábyrgðarmaður: Ludvig Guðmundsson, læknir.
- Áhrif hjartaendurhæfingar á sykurstjórnun, áhættuþætti hjartasjúkdóma og lífstíl hjá hjartasjúklingum með sykursýki II. Ábyrgðarmaður: Magnús R. Jónasson
Þá var gengið til dagskrár, sem sjá má í meðfylgjandi skjali. Fjórar rannsóknir voru kynntar með fyrirlestrum og tólf með veggspjöldum. Rannsóknir á Reykjalundi bera það með sér að stofnunin er mjög þverfaglegur vinnustaður. Þarna voru rannsóknir innan sálfræði, næringarfræði, hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfunar, lækninga og lífeðlisfræði, eins og sjá má í dagskránni. Flestir rannsakenda starfa á Reykjalundi, en einnig voru kynntar MS rannsóknir og BS rannsóknarverkefni háskólanema sem unnin voru undir handleiðslu leiðbeinenda hér á staðnum. Sú nýbreytni var tekin upp á þessum vísindadegi, að eftir að fyrirlestrum var lokið, gekk ráðstefnustjóri með gestum á milli veggspjalda og rannsakendur sem kynntu efni sitt með veggspjöldum fengu fáeinar mínútur til að kynna niðurstöður sínar. Góður rómur var gerður að þessu fyrirkomulagi og þótti sýnendum og þátttakendum þeir fá meira út úr veggspjaldakynningunni heldur en áður, þegar gestir gengu bara á milli, lásu af spjöldunum og ræddu við rannsakandann ef þeir höfðu sérstakan áhuga á því. Og eins og venjan er þegar góðar rannsóknir eru kynntar, vöknuðu ótal spurningar sem áhugavert verður að leita svara við í komandi rannsóknum. Menn fóru ánægðir heim, mettir af fróðleik, hollum ávöxtum og vænni súkkulaðitertu.