Lionsklúbbur Mosfellsbæjar gefur fjögur vinnuborð.
Þann 13.10. afhenti Lionsklúbbur Mosfellsbæjar iðjuþjálfunardeildinni á Reykjalundi fjögur vinnuborð þar af tvö með rafknúinni hæðarstillingu. Með þeim getur iðjuþjálfunardeildin gefið skjólstæðingum sínum betra tækifæri til að prófa vinnustöður og vinnulag og tækifæri til að vinna jafnt sitjandi sem standandi. Reykjalundur þakkar Lionsklúbbi Mosfellsbæjar höfðinglega gjöf.
Frá afhendingu borðanna, Magnús B. Einarsson formaður Lionsklúbbs Mosfellsbæjar og Lilja Ingvarsson yfiriðjuþjálfi.

Borðin eru strax komin í notkun.