Uppsetning á tímaskráningarkerfi
Á næstunni verður hafist handa við uppsetningu á tímaskráningarkerfinu Bakverði hér á Reykjalundi. Helsta markmiðið með uppsetningu tímaskráningarkerfisins er að einfalda launavinnslu og þá sérstaklega úrvinnslu vinnuskýrslna. Viðskipti starfsfólks við mötuneyti munu einnig fara í gegnum þetta kerfi á þann máta að keypt fæði verður dregið frá launum á sjálfvirkan máta.
Stimpilklukkum verður komið fyrir í Norðurstofu, í starfsmannainngangi inn í Sjúkraþjálfun í D2, í anddyri við inngang 1, í Friðriksbergi og í Hlein. Starfsfólk stimplar sig inn með því að bera starfsmannakort sín upp að klukkunum og út á sama máta. Viðverukerfi mun sýna hverjir eru í húsi og hverjir úti og kemur það til með að hafa hagræðingu í för með sér fyrir starfsmenn skiptiborðs.
Þetta fyrirkomulag mun hafa breytingar í för með sér varðandi uppáskrift vinnuskýrslna en yfirmenn munu þurfa að fara yfir vinnutímaskráningar í kerfinu. Nánari tilhögun verður kynnt viðkomandi yfirmönnum síðar.
Með kveðju,
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Mannauðsstjóri
Beinn sími 585 2143
gudbjorg@reykjalundur.is