Starfsdagur geðteymis
Föstudaginn 30.september var haldinn starfsdagur geðteymis á Reykjalundi.
Verkefni dagsins var að fara í gegnum markmið sem sett voru á starfsdegi teymisins haustið 2004 og skoða hvernig tekist hefði að fylgja eftir stefnumiðandi ákörðunum sem teknar voru þá. Þær ákvarðanir sem teknar voru byggðust á aðferðum gæðastjórnunar. Gerð var vandamálagreining á starfseminni, einkum m.t.t. vinnuferla í tengslum við biðlista og innlagnarferils sjúklinga, svo auka mætti gæði þjónustunnar. Á starfsdeginum kom fram að mikill ávinningur hefur orðið af þessu gæðastarfi innan teymisins og telur teymið það hafa skilað sér til skjólstæðinga sinna og starfsmanna. Sjá upplýsingar um starfsemi geðteymis hér.
