Malbikunarframkvæmdir hafnar
Nú eru framkvæmdir í fullum gangi við Reykjalund. Búið er að malbika Efribrautina. Vinna við stóra bílastæðið við þjálfunarhús er í fullum gangi, búið að setja niður alla ljósastaurana, ganga frá mörgum niðurföllum og unnið að því að koma bílastæðinu í réttar hæðir undir malbik.
Ef vel gengur og veðráttan verður okkur hliðholl getum við reiknað með að stóra bílastæðið verði malbikað í næstu viku.